Sæl kæru vinir eða hver sem þið eruð.
Jæja nú er mínu fyrsta jólaprófi lokiðog var það einsog dæma má
bloggið fyrir neðan náttúrufræði próf. Það gekk bara hreint ekki
svo illa skal ég segja ykkur! Meira að segja bara nokkuð vel miðað
við hversu "vel" ég var búin að læra fyrir það. Það sýnir að
sjálfsögðu að ég hef bara innbyggða snilligáfu!!
Hins vegar var ég rétt í þessu að koma frá
jólatónleikum þar sem ég var að spila á fiðluna og ég er að
segja ykkur það, það var 9 ára stelpa þarna sem spilaði sitt lag
betur heldur en ég spilaði mitt!!
Reyndar var þessi stelpa
óógeðslega góð miðað við aldur, undrabarn held ég bara satt best að
segja!
En aftur að mér. Ég semsagt varð fyrir virkilegum vonbrigðum með
sjálfa mig því ég spilaði þetta svo flott hérna heima
Ég er
að æfa mjög frægan koncert sem heitir Czardas eftir V.
Monti og kannski einhverjir kannast við en hann er alveg
utrolig flottur og töff í alla staði! Málið er bara það að ég
þarf að æfa betur með harmonikkuleikaranum sem spilaði undir hjá
mér en þessari lélegu frammistöðu af minni hálfu vil ég því
kenna að við fengum engan veginn nægan tíma til að æfa
saman!
En alltaf má bæta sig og fram að tónleikunum sem verða í
kirkjunni á laugardag ætla ég að læsa mig inní herbergi, borða ekki
neitt nema hrökkbrauð og vatn og spila Czardas einsog óð
kona þangað til nágrannarnir hringja á lögguna vegna
svefnleysis. Ég er nefnilega orðin drullugóð í að spila hann,
vandamálið er bara hræðileg kunnátta mín í að telja og á ég
mjög erfitt með að spila í réttum takti og sinka mig inná taktinn
sem harmonikkan gefur mér
Hins vegar er ég mjög vongóð um að ég standi mig frábærlega á
kirkjutónleikunum því að eftir þessa frammistöðu er ég búin að
sleikja botninn og þá liggur leiðin aðeins upp á við
Hérna fyrir
neðan er linkur að myndbandi á YouTube með manni sem er
að spila Czardas, reyndar er hægt að spila þetta lag á marga vegu
og þetta er bara ein útgáfan.. ekki sú besta finnst mér. En það
skemmir ekki fyrir að drengurinn er hálfnakinn
http://www.youtube.com/watch?v=4UqEOy7FpBE
Jæja nóg um fiðluspil. Ég vil einnig koma því á framfæri að ég
eftir að ég hafði tekið prófið og látið virkja kortið mitt
aftur í bankanum... já ég nefnilega gleymdi því í hraðbanka á
laugardag, annað skiptið sem það gerist í einmitt þessum hraðbanka!
Tilviljun? en ég fattaði það svo ekki fyrren á sunnudag,
panikkeraði því ég var nýbúin að fá útborgað og lét loka því, svo
beið það eftir mér voða stillt í KB banka þar sem hraðbankinn var
og ég þurfti að gera mér ferð í landsbankann til að láta opna
það aftur
kjáninn ég!
En semsagt eftir það þá fór ég upp í Sporthús eða nánar tiltekið
Smárasól og keypti mér 5 tíma kort í slendertone
það er
eitthvað svona dótarí sem er sett á líkamann og á að brjóta niður
fitu, styrkja vöða og stinna og bæta og svoleiðis, svo ætla ég að
vera geggjó dugleg að fara í ræktina með þessu og þið megið búast
við Hófý OFURBEIBI eftir áramót hvorki meira né minna!
Tjah ekki það að ég þurfi nauðsynlega á þessu að halda
en það má nú alltaf stinna og styrkja og bæta
.. Kortið
kostaði litlar 6500 en ég var samt að spá í að breyta því í
tilboðskort sem kostar 12500 en þá fær maður 10 slender tíma
plús 10 tíma ljósakort sem samtals ætti að kosta 21500 kjeell!
Hugsið ykkur hvað ég fæ mikið fyrir lítið! Brúnni, stæltari,
stinnari og flottari kropp fyrir aðeins 12500 kall! Það kalla
ég góð kaup!!
Anyways þetta er komið gott!
<---- ég eftir slendertone-ið
-Hófý fiðlumódel.